Söluaðili
Sigmundsson ehf. – Desjamýri 1 – 270 Mosfellsbær
Kt: 5501200700 – VSK-nr: 136724 – sigmundsson@sigmundsson.is

Sigmundsson ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða
upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa
samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Sigmundsson ehf. ber
samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara
týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Sigmundsson ehf. til viðkomandi er tjónið á
ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer
fram. Hægt er að fá vöruna senda. Hafið samband við okkur til að fá tilboð í sendingu.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi
hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við
upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð
vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.
Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000
og laga um neytendakaup.

Greiðsluleiðir

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.